Um Tjald
Tjaldur er barnapeysa með munstri á axlastykki, prjónuð neðan frá og upp í hring úr hreinni íslenskri nýull frá Gilhaga (Ær). Peysan í uppskriftinni er brún og í henni eru þrír litir, einn grunnlitur og tveir munsturlitir.
Peysuna má einnig prjóna úr einföldum plötulopa á prjóna nr. 4,5 mm. Ef notaður er plötulopi verður peysan minni þar sem prjónfestan er 19 lykkjur á 10 cm í stað 17 lykkja með Gilhaga-garninu. Því er ráðlagt að fara upp um eina stærð ef peysan er prjónuð úr plötulopa.
Stærðir og mál
Stærðir: 1 – 2 – 3 – 4 – 5 ára
Yfirvídd: 58 – 66 – 70 – 77 – 82 cm
Lengd á bol að handvegi: 20 – 22 – 24 – 26 – 28 cm
Ermalengd: 22 – 24 – 26 – 28 – 30 cm
Efni og garn
Hrein íslensk nýull frá Gilhaga (Ær)
100 g = 200 m
50 g = 100 m
Grunnlitur: Hélumórautt
Munsturlitur 1: Hélusvart
Munsturlitur 2: Mógoltótt
Prjónar og fylgihlutir
Hringprjónar nr. 4 mm / 40 og 60 cm
Hringprjónar nr. 4,5 mm / 40 og 60 cm
Sokkaprjónar nr. 4 og 4,5 mm
2 prjónamerki
4 hjálparnælur
Prjónfesta
17 lykkjur og 26 umferðir í sléttu prjóni = 10 × 10 cm á prjóna nr. 4,5 mm.












