Skilmálar
Móakot
Kt: 200655-2579
Heimilisfang: Sunnuvegur 6, 220 Hafnarfjörður
Netfang: moakot@moakot.is
Símanúmer 6992484
Vsk-nr : 114471
Almennt
Moakot.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunnar eiga sér stað.
Vinsamlegast virðið höfundarrétt. Uppskriftir frá Móakoti má ekki áframsenda né fjölfalda með neinum hætti, svo sem ljósritun, ljósmyndun, prentun eða á annan sambærilegan hátt án leyfis Móakots. Uppskriftin er aðeins til einkanota og óheimilt er að fjölfalda peysur Móakots í hagnaðarskyni.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar þegar greiðsla hefur verið staðfest.
Uppskriftir eru afhentar sem pdf skjal sem er hlaðið niður af síðunni eftir greiðslu. Sé það ekki mögulegt mun seljandi senda skjalið í tölvupósti eða eftir öðrum leiðum.
Skilaréttur
Uppskriftir sem seldar eru á moakot.is eru stafrænar vörur sem afhentar eru rafrænt strax eftir greiðslu. Af þeim sökum er ekki hægt að skila þeim eða fá endurgreitt eftir að aðgangur eða niðurhal hefur verið veitt. Með því að ganga frá kaupum samþykkir kaupandi að afhending hefjist strax og að réttur til að falla frá samningi geti því fallið niður. Ef spurningar vakna veitum við að sjálfsögðu aðstoð við að útskýra uppskriftir eða annað sem tengist vörunum.
Verð
Öll verð í vefverslun eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti. Reikningar eru gefnir út með VSK. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Notkun á persónuupplýsingum
Ef þú skráir þig á póstlista hjá okkur eða gefur upp netfang við kaup gætum við sent þér tölvupóst með upplýsingum um nýjar uppskriftir, tilboð eða annað tengt moakot.is.Þú getur hvenær sem er afskráð þig af póstlistanum með því að smella á afskráningarhlekk neðst í tölvupóstunum sem við sendum. Einnig er hægt að hafa samband við okkur með því að senda póst á moakot@moakot.is og biðja um að vera fjarlægð/ur af póstlistanum.
Lög og varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað.
