screenshot 2026 03 02 at 22.32.24

UM MÓAKOT

Móakot er gamalt kotbýli á Vatnsleysuströndinni, þaðan sem móðurætt mín er komin. Bærinn fór í eyði fyrir löngu, en sagan lifir áfram. Langamma mín, Kristín Jónsdóttir, eignaðist Móakot árið 1879, þá aðeins tvítug að aldri. Hún var bóndi og giftist síðar sveitunga sínum, Bjarna Sigurðssyni, langafa mínum, 32 ára gömul.

Kristín og Bjarni ráku búskap að Móakoti fram til ársins 1923, þegar þau fluttu til Hafnarfjarðar. Amma mín, Margrét – eina dóttir þeirra – bjó megnið af ævi sinni í Hafnarfirði. Hún lést árið 1983, en lifir áfram í minningum mínum og í handverkinu. Það var hún sem kenndi mér að prjóna þegar ég var barn.

Nafnið Móakot er mér því afar kært. Það tengir mig við rætur mínar, fjölskyldusögu og íslenska prjónahefð. Peysurnar Kristín og Bjarni eru hannaðar til heiðurs þeim hjónum frá Móakoti .

LANDNÁMSDÆTUR OG SYNIR

Í prjónahönnun minni legg ég áherslu á að halda í gamlar hefðir og endurspegla íslenskan uppruna. Ég kalla peysurnar mínar Landnámsdætur og synir – flíkur sem byggja á arfleifð, einfaldleika og tímalausri hönnun.

Allar prjónauppskriftir frá Móakoti eru hannaðar með vandað efnisval í huga og miðast við náttúruleg garn, svo sem ull og aðrar náttúrulegar trefjar. Í dag er framboð af gæða garni mikið og oft erfitt að velja eitt fram yfir annað. Við eigum öll okkar uppáhald – og þú mátt gjarnan fylgja þínu.

Ég hvet þig, kæri prjónari, til að velja það garn sem hentar þér best, svo lengi sem prjónafestan er sú sama og gefin er upp í uppskriftinni. Þá nær flíkin að njóta sín til fulls, bæði í sniði og áferð.

tjaldur
Scroll to Top
This site is registered on wpml.org as a development site. Switch to a production site key to remove this banner.