Persónuverndarstefna
Þessi persónuverndarstefna stjórnar því hvernig Móakot safnar, notar, viðheldur og birtir upplýsingar sem safnað er frá notendum á vefsíðu moakot.is („Vefsíðan“). Þessi persónuverndarstefna gildir um vefinn og allar vörur og þjónustu sem moakot.is býður upp á.
Móakot er skuldbundið að verja friðhelgi gesta á vefsíðu okkar, þú hefur rétt á því að skoða vefsíðu okkar án þess að gefa upplýsingar um þig. Friðhelgi gesta á einnig við þó viðkomandi þurfi að gefa upp persónulegar upplýsingar eins og t.d. við afgreiðslu pöntunar.
Ef þú samþykkir ekki þessa skilmála ættir þú að hætta allri vöfrun og skoðun á vefsvæði okkar, vörum eða þjónustu.
Móakot er eini eigandi vefsíðunnar moakot.is og ber þar af leiðandi fulla ábyrgð á því sem gerist inná og í tengslum við vefsíðuna. Verði vefsíðan hökkuð og skemmdir unnar á henni eða persónuupplýsingum stolið mun Móakot fyrirvaralaust slökkva á síðunni til þess að koma í veg fyrir meiri skaða fyrir viðskiptavini vefverslunarinnar. Móakot mun svo að sjálfsögðu tilkynna slíkt atvik til lögreglu.
