Um Heiðu
Heiða er barnapeysa sem er prjónuð ofan frá og niður úr hreinni íslenskri nýull frá Gilhaga. Peysan er prjónuð á prjóna nr. 4,5 og einnig er hægt að prjóna hana úr plötulopa. Í peysunni eru þrír litir, einn grunnlitur og tveir mynsturlitir. Peysan sem sýnd er í uppskriftinni er hélumórauð.
Stærðir og mál
Stærðir: 1 – 2 – 3 – 4 – 5 – 6 – 8 – 10 ára
Yfirvídd: 68 – 73 – 76 – 79 – 82 – 84 – 87 – 90 cm
Lengd á bol: 20 – 22 – 24 – 26 – 28 – 30 – 32 – 34 cm
Ermalengd: 22 – 24 – 26 – 28 – 30 – 32 – 34 – 36 cm
Efni og garn
Garn: Hrein íslensk nýull frá Gilhaga (ær)
Grunnlitur: Hélumórautt
Mynsturlitur 1: Hvítt
Mynsturlitur 2: Hélusvart
Einnig er hægt að prjóna peysuna úr plötulopa.
Prjónfesta
10 × 10 cm = 18 lykkjur og 22 umferðir í sléttu prjóni á prjóna nr. 4,5 mm.










