Um Einstök
Einstök er barnapeysa með fallegu litríku mynstri. Peysan er prjónuð neðan frá og upp úr Léttlopa frá Ístex.
Hægt er að leika sér með litasamsetningar í peysunni. Í brúnu og bláu útgáfunum eru notaðir fjórir litir, einn grunnlitur og þrír munsturlitir. Í drapplituðu útgáfunni eru notaðir fimm litir, einn grunnlitur og fjórir munsturlitir.
Stærðir og mál
Stærðir: 1–2 (2–3) 3–4 (5) 6 (8) 10 ára
Yfirvídd: 61 – 66 – 72 – 77 – 83 – 88 – 94 cm
Lengd á bol: 20 – 22 – 24 – 26 – 28 – 30 – 32 cm
Ermalengd: 22 – 24 – 26 – 28 – 30 – 32 – 34 cm
Efni og garn
Léttlopi frá Ístex – 100% ull
50 g = 110 m
Brún peysa:
Grunnlitur 1420 – Skuggi
Munsturlitur 1 – 0867 – Dökkmórauður
Munsturlitur 2 – 0051 – Hvítur
Munsturlitur 3 – 9419 – Hafblár
Blá peysa:
Grunnlitur 9419 – Hafblár
Munsturlitur 1 – 1420 – Skuggi
Munsturlitur 2 – 1700 – Háský
Munsturlitur 3 – 0051 – Hvítur
Dröppuð peysa:
Grunnlitur 0086 – Ljós beige
Munsturlitur 1 – 1420 – Skuggi
Munsturlitur 2 – 1701 – Fjallagrös
Munsturlitur 3 – 0051 – Hvítur
Munsturlitur 4 – 1700 – Háský
Prjónfesta
10 × 10 cm = 18 lykkjur og 24 umferðir í sléttu prjóni á prjóna nr. 4,5 mm.









